Árið 2025 var viðburðaríkt í norrænu samstarfi um jafnréttis- og LGBTI-mála undir forystu Finnlands og Álandseyja

Megináherslan í formennskutíð Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni um jafnréttismál og LGBTI á árinu 2025 laut að sterkri sameiginlegri rödd Norðurlanda á alþjóðavettvangi.
Sanni Grahn-Laasonen, ráðherra almannatrygginga í Finnlandi, hefur leitt samstarf norrænna ráðherra jafnréttismála og málefna LGBTI fólks í formennsku tíð Finnlands og Álandseyja á árinu 2025.
„Áhersla okkar á vinnuna við „Pushing for Progress“ er mikil, jafnvel þótt formennskutíð okkar sé lokið, og við óskum Danmörku og Færeyjum góðs gengis við að halda vinnunni áfram í formennskutíð sinni. Það er mikilvægt að við fáum aukinn stuðning við vinnuna og styrkjum bandalag þeirra landa sem leggja áherslu á að efla jafnrétti, kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi auk jafns réttar LGBTI fólks,“ segir hún.
Á árlegum fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW) í mars stóð ráðherranefndin, undir forystu Finnlands og Álandseyja, fyrir nokkrum fundum og umræðum þar sem sjónum var beint að málum sem snúa að andstöðu við réttindum kvenna sem hluta af „Pushing for Progress“. Meðal annars var haldinn fundur milli norrænu jafnréttisráðherranna og framkvæmdastjóra UN Women, Sima Bahous.
„Saman getum við stutt Sameinuðu þjóðirnar og haft aukin áhrif á alþjóðlega stefnumótun í þessu starfi en einnig stutt hvert annað með þekkingarmiðlun, sameiginlegum yfirlýsingum og sameiginlegri jafnréttisáætlun, segir jafnréttisráðherra Álandseyja Arsim Zekaj, sem deildi formennskunni á árinu með Grahn-Laasonen.
Þetta var í fyrsta sinn sem formennskunni var deilt en Álandseyjar og Finnland lýsa jákvæðri reynslu af því og segja það hafa styrkt og dýpkað samstarfið bæði á norrænum og alþjóðlegum vettvangi.
Karlar og karlmennska á dagskrá
Haustið 2025 var haldin málstofuröð sem varpaði ljósi á hvernig félagsleg viðmið hafa áhrif á karla og drengi, hlutverk karla í krísum og hvernig karlar og drengir geta stuðlað að „jákvæðri karlmennsku“ til að auka þekkingu og skapa umræðu um karla og karlmennsku á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. NIKK (Norræna upplýsingamiðstöðin um kynjafræði) gaf að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar út rit þar sem farið er yfir það hvernig fyrri norræn verkefni og gögn hafa fjallað um karla og karlmennsku og hvaða sjónarhorn vantar, með það að markmiði að vísa veginn fyrir norræna jafnréttisstefnu í framtíðinni.
Á árinu var 30 ára afmæli Peking-yfirlýsingarinnar og aðgerðaáætlunar Sameinuðu þjóðanna minnst. Norrænu ráðherrarnir ræddu aðgerðaáætlunina og afmælið út frá norrænu sjónarhorni á Jafnréttisdögum í Vantaa, árlegri finnskri jafnréttisráðstefnu.
„Við erum ánægð með að ég fékk að fagna þessum áfanga ásamt öðrum norrænum ráðherrum í Vantaa í október í tengslum við Jafnréttisdaga. Við ræddum mikilvægi Peking-yfirlýsingarinnar og norrænan árangur,“ segir Grahn-Laasonen að lokum.
